Sagan
Kornið var stofnað árið 1981 að Hjallabrekku í Kópavogi og lagði strax mesta áherslu á smásölu og var með fjóra útsölustaði þegar mest var.
Eftirspurn var eftir brauðvörum meðal fyrirtækja og varð það sífellt stærri hluti af viðskiptum fyrirtækisins.
Markmið
- Að veita viðskiptavinum ferska vöru í hæsta gæðaflokki og veita góða þjónustu á sanngjörnu verði.
- Að nota einungis fyrsta flokks hráefni í framleiðsluna.
- Að vera með úrvals vinnuaðstöðu og einungis fyrsta flokks fagfólk.
Staðreyndir
Kornið hefur undanfarin 10 ár unnið að því að fjárfesta í besta tækjabúnaði sem um fáanlegur er í heiminum fyrir þessa iðn, og státar af því að vera best búna bakaríið á landinu um þessar mundir.
Kornið sinnir nú yfir 200 fyrirtækjum og stofnunum á landinu. Vörudreifing er frá kl. 5 á morgnana og fram eftir degi eftir því sem þörf krefur.
Kornið hefur um nokkurra ára skeið rekið veisluþjónustu sem hristir fram úr erminni, með undraskömmum fyrirvara, glæsilegar tertur jafnt sem smurt brauð og hefur sú deild verið í stöðugri sókn og er orðin að einni af styrkustu stoðum fyrirtækisins.
Kornið ehf.
Hjallabrekku 2, Kópavogi
Sími: 564 1800 / Fax: 544 5056
Pöntunarsímsvari: 564 1801
Rögnvaldur Þorkelsson framkvæmdastjóri roggi@kornid.is
Guðjón Jóhannesson yfirbakari gudjon@kornid.is




